Hvar kemstu í skötu? Skötuvísir Kaffisins 2024

Hvar kemstu í skötu? Skötuvísir Kaffisins 2024

Fyrir mörgum íslendingum fá jólin ekki að koma fyrr en búið er að gæða sér á kæstri skötu á Þorláksmessu. Það sem sker hins vegar í leikinn er að ekki stendur alltaf til boða að halda skötuveislu á eigin heimili, sérstaklega ef makar, börn eða meðleigjendur eru viðkvæmir fyrir lyktinni.

Við á Kaffinu höfum því, líkt og í fyrra, tekið saman þá veitingastaði á Akureyri sem munu bjóða upp á skötuhlaðborð þessa Þorláksmessuna. Hugsanlegt er að lesendur verði við heimkomu látnir skipta um föt úti á svölum af sambýlisfólki sínu, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir góða skötu?

Hér að neðan er listi af þeim veitingastöðum sem gefið hafa út að skata verði í boði á Þorláksmessu. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast. Hafa ber í huga að á sumum stöðum gæti þurft að panta borð með fyrirvara og á sumum stöðum gæti verið fullbókað þegar fréttin er lesin.

Bautinn

Skötuhlaðborð Bautans verður allan daginn og fram á kvöld á Þorláksmessu.

Strikið

Skötuhlaðborð verður á Strikinu í hádeginu á Þorláksmessu, frá 12:00 til 14:00. Hægt er að bóka borð í síma eða á strikid.is

Múlaberg

Þegar þessi frétt er skrifuð eru örfá sæti laus í skötuhlaðborð á Múlabergi klukkan 13:30 á Þorláksmessu. Hver fer þó að verða síðastur að tryggja sér borð! Bókanir í síma: 460-2020

Greifinn

Skötuhlaðborð verður á Greifanum í hádeginu á Þorláksmessu.

Lyst

Þeir sem ekki kæra sig um kæsta skötu en vilja þó taka þátt í skötuhefðinni geta gætt sér á ferskri skötu á LYST í Lystigarðinum frá klukkan 11:30 til 13:30 á Þorláksmessu. Borðapantanir á LYST.is
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó