Verkefnasstjóri í gervigreind hefur störf við HA í janúar

Verkefnasstjóri í gervigreind hefur störf við HA í janúar

Magnús Smári Smárason hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóra í gervigreind. Starfið er til tveggja ára og mun Magnús hefja störf í byrjun janúar 2025. Aðalverkefni Magnúsar verður að stýra innleiðingu og þróun gervigreindar innan háskólans, með sérstakri áherslu á fræðslu, ráðgjöf og mótun stefnu í tengslum við þessa byltingarkenndu tækni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans.

Magnús mun leiða verkefni sem efla nýtingu gervigreindar innan háskólans með því að styðja stoðþjónustu og akademískt starfsfólk við að nýta tæknina í störfum sínum, auk þess að sjá um fræðslu og skipulag námskeiða fyrir starfsfólk og stúdenta. Þá verður hann í forsvari fyrir mótun og innleiðingu gervigreindarstefnu skólans í samvinnu við stjórnendur, starfsfólk og stúdenta skólans.

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA segir að ráðning Magnúsar séu tímamót fyrir Háskólann á Akureyri. „Gervigreindin er þegar farin að hafa áhrif í háskólum og er líkleg til að umbylta menntun, störfum og rannsóknum. Því er mikilvægt fyrir starfsfólk og stúdenta að læra hvernig er hægt að nýta sér þessa tækni, sem og takmarkanir gervigreindarinnar,“ segir Áslaug.

„Með þessari ráðningu er HA að taka stórt skref inn í framtíðina með því að móta gervigreindarstefnu fyrir Háskólann á Akureyri sem miðar að því að valdefla og styðja starfsfólk og stúdenta skólans að nýta sér gervigreind í námi og starfi,“ segir Dr. Auðbjörg Björnsdóttir forstöðumaður KHA.

Magnús hefur ástríðu fyrir gervigreind og hefur meðal annars sótt námskeið í gervigreind og gagnavísindum hjá University of Oxford og starfað með The Erdos Research Labs, sem miðar að því að endurhugsa menntun með tilliti til gervigreindar. Magnús hefur víðtæka reynslu af kennslu og þróun námskeiða og hefur nýtt þá þekkingu til að setja upp námskeið og fyrirlestra um gervigreind og hefur skrifað fjölda pistla um samfélagsleg áhrif tækninnar. Þá er Magnús með meistarabréf í múriðn, með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og stundar meistaranám í sama fagi.

Ráðning Magnúsar er stórt skref fyrir Háskólann á Akureyri, sem stefnir á að vera í fararbroddi í nýtingu gervigreindar á Íslandi. Eins og fram hefur komið mun Magnús hefja störf í janúar og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til starfa!

Sambíó

UMMÆLI