Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) efnir til málþings þann 20. nóvember næstkomandi um áhrif menningar og skapandi greina í landsbyggðum. Málþingið fer fram í Háskólanum á Akureyri (Sólborg við Norðurslóð) og í streymi.
Leitast verður eftir að skoða þá rannsóknaflóru sem tengist menningu og skapandi greinum á landsbyggðinni, áhrifum þeirra og hvaða tækifæri eru til frekari rannsókna. Jafnframt munu aðilar úr atvinnulífinu fjalla um eigin reynslu af áhrifum menningar og skapandi greina í landsbyggðum. Eyjólfur Guðmundsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, stýrir pallborði.
Dagskrá
13:00
Opnunarávarp
Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum
13:10
Menning og skapandi greinar: Landfræðilegt spennusvæði?
Erna Kaaber, sérfræðingur við Háskólann á Bifröst
13:35
Frá mínu sjónarhorni
Björt Sigfinnsdóttir, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri LungA, Kaospilot og söng- og listakona
13:55
Landfræðilegur mismunur á nýsköpun á Íslandi: Er nýsköpun fyrirtækja ólík eftir landshlutum á Íslandi, skapandi greinum og öðrum atvinnugreinum?
Vífill Karlsson, prófessor við Háskólann á Bifröst og dósent við Háskólann á Akureyri
14:20
Uppbygging og áhrif nýsköpunarjarðvegs
Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjóri Hraðsins, miðstöðvar nýsköpunar
14:40
Hlé – kaffi og léttar veitingar
15:10
Pallborð
Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar
Örlygur Hnefill Örlygsson, framleiðandi
Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi og yfirverkefnastjóri hjá Austurbrú
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar Rannsóknaseturs skapandi greina
16:00 Málþingsslit
Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) var stofnað haustið 2023. Það er umsýslað af Háskólanum á Bifröst en auk hans eru stofnaðilar Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands.
Meginmarkmið RSG er að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina, með hliðsjón af fjölþættum áhrifum listsköpunar og menningarframleiðslu á samfélagið. RSG er óháður rannsóknaraðili og leggur áherslu á akademískt sjálfstæði í allri starfsemi. Rannsóknasetrið sinnir fjölbreyttum rannsóknum og greiningum á atvinnulífi menningar og skapandi greina og vinnur að því að styrkja rannsóknamenningu og -innviði á þessu sviði. Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um stefnu RSG.
UMMÆLI