Framsókn

Guðfinna gengin til liðs við UFAMynd/UFA

Guðfinna gengin til liðs við UFA

Guðfinna Kristín Björnsdóttir er ein efnilegasta hlaupakona landsins um þessar mundir þrátt fyrir stuttan hlaupaferil. Hún byrjaði að hlaupa eftir að knattspyrnuskórnir fóru á hilluna árið 2021 og hefur náð mjög athyglisverðum árangri á þessum stutta tíma. Árið 2023 sigraði hún Hvítasunnuhlaup Hauka ásamt því að vera ofarlega í helstu keppnishlaupum landsins það sumar og þar er sagan rétt að byrja. Þetta kemur fram á vef UFA, þar segir einnig:

Sumarið 2024 sigraði Guðfinna Þorvaldsdalsskokkið og Kerlingafjöll ultra, einnig endaði hún í 6. Sæti í Hammer trail í Danmörku, 4. sæti í Laugaveginum, 3. sæti í Súlur Vertical 43 km ásamt því að loka sumrinu í Sviss þar sem hún keppti í Wildstrubel 70 km hlaupi þar sem hún endaði í sjöunda sæti.

Nú er komið að því að halda áfram að skrifa hlaupasöguna og stefnir Guðfinna á að bæta brautarhlaupum við í keppnisdagskrána sína næstu misserum, hindrunarhlaup og millivegalengdir eru það sem er mest spennandi segir hún á vef UFA.

Guðfinna sem stundar nám við læknisfræði í Danmörku þessa stundina segist vera spennt fyrir samstarfinu með UFA og hún hlakki til að keppa fyrir félagið á brautinni á komandi keppnistímabili.

VG

UMMÆLI