Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri leiðir samnorrænt rannsóknarverkefniSæunn Gísladóttir (RHA), Lisa Knatterud Wold (Østlandsforskning), Ulf Hansson (Dalarna), Zuzana Macuchova (Dalarna), Deniz Akin (Østlandsforskning). Ljósmynd: Háskólinn á Akureyri.

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri leiðir samnorrænt rannsóknarverkefni

Í síðustu viku komu saman í Lillehammer í Noregi fulltrúar frá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), rannsóknamiðstöðinni Østlandsforskning við Høgskolen i Innlandet (Noregur) og Dalarna háskóla (Svíþjóð). Tilgangur fundarins var að ýta úr vör samnorrænu rannsóknarverkefni sem RHA leiðir.

Verkenfið ber nafnið „Enhancing labour opportunities for Ukrainian women in rural Nordic communities“ og snýr að því að rannsaka hvernig konum sem flúðu Úkraínu eftir innrás Rússa til Norðurlandanna hefur vegnað á norrænum vinnumarkaði. Um er að ræða tveggja ára verkefni sem styrkt er af NIKK jafnréttissjóðnum. Frá þessu er greint á heimasíðu Háskólans á Akureyri. Þar segir einnig:

Rýnihópar verða framkvæmdir og viðtöl tekin við úkraínskar konur og lykilaðila sem vinna með flóttamönnum til að kanna stuðning og hindranir við vinnumarkaðsþáttöku. Einnig verður kannað hvort draga megi lærdóm af upplifun þessa fólks af norrænum vinnumörkuðum til að styðja betur við atvinnuþátttöku annarra flóttamannahópa.

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA, sótti fundina í Lillehammer og mun hún ásamt Mörtu Einarsdóttur, sérfræðingi hjá RHA, stýra verkefninu, en líkt og áður segir er verkefnið leitt af RHA. Á heimasíðu HA segir Sæunn að fundir í persónu skipti máli í verkefnum: „Það er mikilvægt að undirbúa verkefni vel og jafnframt að kynnast betur sem rannsakendur og á fundinum fórum við einnig yfir helstu rannsóknir hverrar stofnunar. Ljóst er að miklir möguleikar eru til frekara samstarfs milli þessara norrænu stofnana en hinar stofnanirnar hafa meðal annars rannsakað byggðaþróun og jafnréttismál svo eitthvað sé nefnt.“

Stefnt er að því að hefja gagnasöfnun í verkefninu núna í vetur og funda á ný á Akureyri næstkomandi vor. Verkefninu lýkur í ágústlok 2026.

UMMÆLI

Sambíó