NTC

Trausti er nýr framkvæmdastjóri Vélfags ehf.Núverandi og verðandi framkvæmdarstjórar takast í hendur. Trausti Árnason til vinstri, Bjarmi Sigurðarsson til hægri. Ljósmynd: Vélfag ehf.

Trausti er nýr framkvæmdastjóri Vélfags ehf.

Trausti Árnason verður nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins Vélfags ehf. Hann tekur formlega við stöðunni af núverandi framkvæmdarstjóra, Bjarma Sigurgarðarssyni, þann 1. nóvember næstkomandi. Bjarmi tekur í kjölfarið sæti í stjórn Vélfags. Trausti kemur til Vélfags frá fyrirtækinu Controlant, þar sem hann starfaði sem forstöðumaður vörusviðs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Vélfag ehf. sendi frá sér í dag.

,,Vélfag er spennandi fyrirtæki með mikla möguleika sem byggir á sterkum grunni og tækni sem hefur sannað sig um allan heim. Bjarmi og Vélfagsteymið hafa mótað metnaðarfulla framtíðarsýn af miklu innsæi fyrir fiskvinnslu framtíðarinnar, þar sem UNO vélin mun leika stórt hlutverk. Ég er fullur tilhlökkunar og bjartsýni að takast á við allar þær áskoranir og þau tækifæri sem því fylgir með samhentum hópi starfsfólks, í nánu samstarfi með viðskiptavinum“ segir Trausti í fréttatilkynningu. Í tilkynningu segir einnig:

Trausti kemur frá Controlant þar sem hann hefur leitt uppbyggingu vörusviðs félagsins í gegnum mikinn vöxt sl. 3 ár en Controlant er leiðandi fyrirtæki í lausnum fyrir rauntímavöktun lyfjasendinga. Fram að því hafði Trausti starfað í tækni- og þjónustumálum fyrir sjávarútveginn og matvælaiðnaðinn frá árinu 1996, þegar hann gerði lokaverkefni sitt í kerfisfræði frá TVÍ (nú Háskólinn í Reykjavík) hjá Marel. Næstu 4 árin starfaði hann við hugbúnaðargerð fyrir íslenska sjávarútveginn þangað til hann kom aftur til Marel árið 2000 og starfaði þar í ýmsum störfum á vaxtarárum félagsins til ársins 2020 fyrst í hugbúnaðargerð, ráðgjöf og þjónustu en leiddi síðan uppbyggingu- og samþættingu þjónustunets Marel frá 2013 til 2020.
Frá Marel fór Trausti til Skagans 3X og leiddi tæknisvið og aðfangastýringu félagsins frá 2020-2021, áður en hann fór til Controlant.

Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, er bjartsýnn um framtíð fyrirtækisins: ,,Ég er fullviss um að ráðning Trausta gefi Vélfagi byr í seglin,“ segir Alfreð í tilkynningu.

Bjarmi Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir, stofnendur Vélfags, eru einnig ánægð á þessum tímamótum. Í tilkynningu segja þau: „Fyrirtækið býr yfir miklum mannauði og þekkingu og Trausti er að okkar mati leiðtogi sem hefur bæði reynslu og kosti sem leysa slíka krafta úr læðingi. Við lítum framtíð Vélfags björtum augum enda höfum við fulla trú á að Trausti muni leiða öflugt teymi Vélfags þannig að fyrirtækið skipi sér í fremstu röð í geiranum“

Sambíó

UMMÆLI