Alþjóðleg stuttmyndahátíð haldin á Akureyri í annað sinn

Alþjóðleg stuttmyndahátíð haldin á Akureyri í annað sinn

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Lights – Fantastic Film Festival verður haldin í annað sinn á Akureyri dagana 31. október – 3. nóvember næstkomandi.

Sýndar verða 47 stuttmyndir frá 22 löndum, sem keppa til veglegra vinninga. 

Brautryðjandinn John R. Dilwort er heiðursgestur hátíðarinnar í ár, en hann er þekktastur fyrir teiknimyndaseríur sínar eins og Courage the Cowardly Dog, sem slógu í gegn á Cartoon Network um aldamótin. Dilworth fetar þar með í fótspor Christopher Newman, framleiðanda Game of Thrones & Lord of the Rings – Rings of Power, sem var heiðursgestur hátíðarinnar í fyrra.

Hátíðin er studd af Uppbyggingasjóði Norðurlands eystra, Menningarsjóði Akureyrarbæjar og Kvikmyndamiðstöð íslands. Hátíðin fer fram í Menningarhúsinu Hofi.

Nánari upplýsingar á vefnum www.fantasticfilmfestival.is.

UMMÆLI

Sambíó