Miðvikudaginn 17. október var haldið opið hús á endurbættri geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) þar sem samstarfsfólki og gestum gafst tækifæri til að skoða nýja aðstöðu deildarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu Sjúkrahússins á Akureyri.
„Endurbæturnar hafa falist í miklum breytingum á umhverfi bæði sjúklinga og starfsfólks, þó að fjöldi legu- og meðferðarrýma hafi ekki breyst,“ segir í tilkynningu.
Bernard Gerritsma, deildarstjóri og Valborg Lúðvíksdóttir aðstoðardeildarstjóri tóku vel á móti gestum sem voru ánægðir með að fá að skoða aðstöðuna áður en skjólstæðingar flytja inn:
„Við erum mjög ánægð með þessar breytingar sem voru orðnar tímabærar. Aðstaða starfsfólks var ófullnægjandi og takmarkað aðgengi var að skráningum og almennri skipulagsvinnu á vakt. Breyting á vaktrými gefur þá einnig betri yfirsýn yfir deildina í heild. Þá var einnig þörf á endurbótum á sjúklingarýmum, gólfefnum, loftklæðningum og lýsingu ásamt því að mála veggi deildarinnar. Þörfinni fyrir einbýli, fjölgun rýma og aðgengi að útsvæði mætum við þó ekki fyrr en í nýbyggingu geðdeildar á næstu árum en endurbætur á núverandi húsnæði eru að koma afar vel út.“
Þótt legurýmum hafi ekki fjölgað, er aðstaðan öll betri og sérstaklega var hugað að bættri vinnuaðstöðu starfsfólks.
„Framkvæmdirnar hófust þegar deildinni var lokað 7. ágúst. Nú, 10 vikum síðar, getum við loks sýnt afraksturinn sem mun auðvelda bæði starfsfólki og sjúklingum að njóta öruggara og betra umhverfis,“ segir Karl Ólafur Hinriksson teymisstjóri húsumsjónar.
Opnun endurbættrar geðdeildar er stórt skref í átt að bættri þjónustu og umönnun skjólstæðinga á SAk. 2025 er stefnt að fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við SAk þar sem öll þjónusta geðdeildarinnar kemur saman á einu svæði.
UMMÆLI