Listasafnið gjörningahátíð

Nemendur frá Lettlandi í heimsókn í MTR

Nemendur frá Lettlandi í heimsókn í MTR

Þessa viku heimsækir 15 manna hópur lettneskra nemenda og þrír kennarar frá skólanum Saldus vidusskola Menntaskólann á Tröllaskaga. Koma þau frá bænum Saldus þar sem búa um tíuþúsund manns. Nemendur og kennarar fá heimagistingu og fá því að kynnast íslensku samfélagi örlítið betur. Nemendur og kennarar eru hér á landi til þess að taka þátt í samstarfsverkefni með nemendum í MTR, í gegnum Nordplus, sem snýst um að kynna sér menningararf Íslands. Þetta kemur fram á vefsíður MTR, þar segir einnig:

Lettneski hópurinn kom til Ólafsfjarðar snemma á mánudagskvöldi eftir flug að utan og rútuferð frá Keflavíkurflugvelli. Þar tóku gestgjafarnir á móti þeim og fylgdu hverjum og einum á sinn dvalarstað, en sumir gista á Ólafsfirði og aðrir á Siglufirði. Voru gestirnir ánægðir en nokkuð þreyttir þegar lagst var á koddann eftir langt ferðalag.

Fyrsti dagurinn í formlegri dagskrá var á Siglufirði. Þar var byrjað á heimsókn á Síldarminjasafnið þar sem saga síldveiða og hin víðtæku áhrif hennar voru skoðuð frá ýmsum hliðum undir leiðsögn starfsfólks safnsins og einnig var litið inn í Slippinn þar sem fræðst var um bátasmíði. Í hádeginu var snætt á hinu nýja kaffihúsi Síldarminjasafnsins. Eftir hádegið heimsóttu nemendur svo Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og fengu þar fræðslu um bæði íslensk og grísk þjóðlög. Einnig sóttu þeir Ljóðasetur Íslands heim og fræddust um íslenska ljóðlist, þá sérstaklega Eddukvæðin og íslenska bragfræði. Er óhætt að segja að ýmiskonar menningararfur hafi komið við sögu í þessum heimsóknum og veitt nemendum nýja sýn á viðfangsefni verkefnisins.

Um kvöldið var svo spilakvöld í skólanum þar sem nemendum gafst tækifæri til að kynnast betur og eiga góða stund saman.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó