Listasafnið gjörningahátíð

KA Íslandsmeistarar í fótbolta í 2. flokki karla

KA Íslandsmeistarar í fótbolta í 2. flokki karla

Strákarnir í 2. flokki KA í fótbolta tryggðu sé Íslandsmeistaratitilinn í gær með 2-1 sigri á heimavelli gegn Stjörnunni. Bæði lið gátu unnið Íslandsmeistaratitilinn fyrir leikinn líkt og FH sem spilaði á móti Breiðablik.

Þórir Hrafn Ellertsson og Breki Hólm Baldursson skoruðu mörk KA í sigrinum í dag og komu þau bæði eftir hornspyrnur. Eina mark Stjörnunnar í leiknum var sjálfsmark.

Til hamingju KA!

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó