Framsókn

AtNorth færði VMA stýritöflu að gjöf

AtNorth færði VMA stýritöflu að gjöf

Árni Björnsson, stöðvarstjóri gagnaversfyrirtækisins atNorth á Akureyri, kom ásamt sínu fólki færandi hendi í VMA sl. föstudag og færði skólanum/rafiðnbraut að gjöf fullkomna stýritöflu sem m.a. mun nýtast sérstaklega vel í kennslu nemenda á fimmtu önn í rafvirkjun í áfanganum Rökrásir. Gjöfinni veittu viðtöku Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA, Haukur Eiríksson brautarstjóri rafiðnbrautar skólans og kennarar við rafiðnbrautina. Þetta kemur fram á vef skólans.

Sambærilegar stýritöflur notar atNorth í gagnaveri sínu við Rangárvelli ofan Akureyrar og því er um að ræða nýjasta búnað af þessum toga. Andvirði hans eru nokkrar milljónir króna. Haukur Eiríksson og Sigríður Huld Jónsdóttir sögðu þegar þau veittu gjöfinni viðtöku og þökkuðu fyrir hana að slíkur hugur atvinnulífsins í garð skólans væri honum afar mikils virði og hér væri um gagnkvæman ávinning skóla og atvinnulífs að ræða því mikilvægt væri að nemendur hefðu aðgang í námi sínu að nýjum og fullkomnum búnaði sem bíður þeirra síðan þegar út á vinnustaðina er komið að námi loknu.

Árni Björnsson rekstrarstjóri segir að fyrirtækið líti svo á að mikilvægt sé að styðja við tæknimenntun á svæðinu:

Við viljum og okkur finnst að við höfum ákveðnar skyldur gagnvart nærumhverfi okkar, t.d. skólum og íþróttastarfsemi í bænum. Við vildum gefa Verkmenntaskólanum sambærilegan búnað til kennslu og upplýsingamiðlunar til nemenda og verið er að nota út í atvinnulífinu. Oft er það svo tækniþróunin er svo hröð að kennslubúnaður úreldist fljótt en hér er um að ræða búnað sem við erum að nota í dag. Vissulega skiptir það okkur miklu máli að hér á svæðinu sé í boði góð tæknimenntun og með þessari gjöf viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar í þeim efnum.

Nánari umfjöllun á vef VMA.

VG

UMMÆLI

Sambíó