NTC

Best heppnaða og fjölmennasta Pollamót Þórs í körfuknattleik

Best heppnaða og fjölmennasta Pollamót Þórs í körfuknattleik

Pollamót Þórs í körfuknattleik fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri 4. og 5. október. Aldrei hafa fleiri lið verið skráð til leiks (31) eða keppendur fleiri (tæplega 300). Ekki var annað að sjá á keppendum og öðrum gestum en að mótið og lokahófið hafi lukkast afar vel.

„Á Pollamóti Þórs í körfuknattleik sannast hið fornkveðna að maður er manns gaman. Gleðin var við öll völd innan sem utan vallar og þótt fólki renni stundum kappið í kinn í leik bar það ekki fegurðina ofurliði. Körfubolti er skemmtileg íþrótt þar sem allir geta fundið sína fjöl. Þá er fátt skemmtilegra en að hitta gamla félaga úr boltanum og eignast nýja,“ segir á vef Þórs.

Þegar upp var staðið var það Landsliðið (réttnefnda) sem varð hlutskarpast í Pæjudeildinni (20 ára og eldri konur). UMFGB unnu Polladeildina (25 til 39 ára karla) og UBK stóð uppi sem sigurvegari í Lávarðadeildinni (karlar 40 ára og eldri).

Nánari umfjöllun á vef Þórs.

VG

UMMÆLI

Sambíó