Guðmundur Vignisson hefur verið ráðinn í stöðugildi samfélagslögreglumanns hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Embættið hefur fengið fjárveitingu til að standa undir einu stöðugildi samfélagslögreglumanns eða forvarnarfulltrúa eins og staðan hét áður. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.
Þar segir að stöðugildið sé til tveggja ára og sé liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að meðal annars vinna gegn ofbeldi meðal barna. Markmið aðgerðarinnar er að auka traust á lögreglu og sýnileika í samfélaginu, leysa félagsleg vandamál og ná til barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu. Í aðgerðinni felst virkt samtal og samvinna lögreglu við þá aðila sem hafa aðkomu að málefnum barna svo sem skóla, frístundastarf og barnaverndar- og félagsþjónustu sveitarfélaga.
„Við höfum orðið mjög vör við ákall samfélagsins um aukna fræðslu og forvarnarstarf og er það okkur afar kærkomið að geta svarað því kalli,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Lögreglumaðurinn Guðmundur R. F. Vignisson tekur að sér verkefni samfélagslögreglumanns og hefur hann þegar hafist handa við verkefnið. Hann mun meðal annars verða í samstarfi við forvarnarfulltrúa skóla og sveitarfélaga í umdæminu og aðra samfélagslögreglumenn í öðrum umdæmum.
„Forvarnarstarf lögreglu er ekki eins manns verkefni og mun Guðmundur því skipuleggja og taka þátt í forvarnarstarfi annarra lögreglumanna í umdæminu, t.d. með heimsóknum í félagsmiðstöðvar og virkara og nánara samtali við börn og ungmenni. Verkefni Guðmundar eiga síðan eftir að þróast en það er ljóst að hann horfir fram á stóran óplægðan akur verkefna á þessu sviði. Við óskum samfélaginu til hamingju með þennan áfanga og Guðmundi til hamingju með ný verkefni um leið og við óskum honum góðs gengis og velfarnaðar í þeim,“ segir í tilkynningu lögreglu.
UMMÆLI