Samherji hlýtur verðlaun fyrir „eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík“Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson/samherji.is

Samherji hlýtur verðlaun fyrir „eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík“

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru veitt, í gærkvöldi í Salnum í Kópavogi, fyrir framúrskarandi árangur í sjávarútvegi. Verðlaunin eru hluti af íslensku sjávarútvegssýningunni, Ice Fish 2024, sem haldin er nú í fertugasta skipti. Á sýninguna mæta yfir tuttugu lönd til þess kynna það nýjast í sjávarútvegi.

Samherji hreppti verðlaunin þetta árið og í tilkynningu frá Ice Fish um verðlaunin segir: „Samherji reisti eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík, þar sem fyrirtækið framleiðir hágæða afurðir fyrir alþjóðlega markaði.“

Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson/samherji.is – Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja, Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish 2024, Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja

Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja og Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja tóku á móti verðlaununum fyrir hönd Samherja.

„ Við erum afskaplega stolt af þessum verðlaunum. Um þessar mundir eru fjögur ár síðan við hófum vinnslu í nýja húsinu og fullyrðum að um sé að ræða eina fullkomnustu bolfiskvinnslu í heiminum. Búnaðurinn er að mestu íslenskur og hönnun og útfærsla á mörgum þáttum starfseminnar er ný af nálinni. Húsið hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim og þessi verðlaun undirstrika að okkur hefur greinilega tekist vel til,“ segir Gestur Geirsson á vef Samherja.

„ Vinnslan á Dalvík er glæsilegt dæmi um nýsköpun, frumkvöðlastarf og góðan aðbúnað. Allt kapp er lagt á að uppfylla kröfur viðskiptavina og því er fylgst vel með framleiðslunni á öllum stigum. Þessi verðlaun eru kærkomin og sýna vel að við erum framarlega á heimsvísu,“ segir Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó