Nýtt geðheilsuteymi barna hjá HSN

Nýtt geðheilsuteymi barna hjá HSN

Frá og með 1. október næstkomandi mun þjónusta sem barna- og unglingageðteymi (BUG) hefur veitt á Sjúkrahúsinu á Akureyri færast til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Verður hún hluti af sálfélagslegri þjónustu HSN sem hefur sinnt grunnþjónustu við börn og fullorðna og sinnt einstaklingum með alvarlegri og flóknari vanda innan geðheilsuteymis fullorðinna.

Þetta kemur fram í tilkynningu HSN í dag þar sem einnig segir að í kjölfar þessarar tilfærslu muni HSN, til viðbótar við grunnþjónustu, hafa tök á að veita börnum á Norður- og Austurlandi með alvarlegri og flókinn vanda þjónustu, með stuðningi Geðheilsumiðstöðvar barna. Í kjölfar þessa hefur stöðugildum í geðheilsuteymi barna og ungmenna verið fjölgað frá því sem var hjá SAk og nýir sérfræðingar ráðnir til starfa. Þessi skipa nýtt geðheilsuteymi barna:

María Bjarnadóttir, félagsráðgjafi hefur verið ráðin teymisstjóri og félagsráðgjafi teymisins. Hún starfaði áður sem teymisstjóri meðferðarteymis hjá barna- og unglingageðdeild Landsspítala (BUGL).

Anna Lilja Sigurvinsdóttir, sálfræðingur sem áður var í geðheilsuteymi fullorðinna á HSN.

Ingibjörg Ragna Malmquist, sálfræðingur sem var á stofu og þar áður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

Hugrún Hauksdóttir læknirFriðrik Már Ævarsson, sálfræðingur, Róshildur Arna Ólafsdóttir, sálfræðingur og Elín Karlsdóttir, sálfræðingur voru öll starfandi í BUG teyminu á SAk og munu halda áfram því starfi í nýju geðheilsuteymi hjá HSN.

Ester Dögg Jónsdóttir heilbrigðisgagnafræðingur verður einnig hluti af teyminu en hún starfar hjá HSN í dag.

„Við sjáum mikil tækifæri til að efla þjónustu og samfellu í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norðurlandi og Austurlandi undir hatti HSN og því er gríðarmikill styrkur að fá reynt og gott fólk til starfa í nýtt geðheilsuteymi. HSN hefur mikinn metnað til að gera þetta vel,“ segir Alice Harpa Björgvinsdóttir, forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu hjá HSN. Hún bætir við: „Núna verður þjónustan öll á einum stað sem gerir boðleiðir styttri, eflir þverfaglega samvinnu og bætir flæði á milli þjónustustiga. Þá gerir stærra teymi en áður okkur kleift að sinna fleiri börnum og unglingum en áður. Við bjóðum nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa.“

Geðheilsuteymi HSN mun sinna börnum með miðlungs til alvarlega flókinn vanda sem þurfa aðkomu teymis eða fyrir þau börn sem þurfa meiri, lengri og sérhæfðari þjónustu en veitt er í grunnþjónustu heilsugæslunnar. Þá mun geðheilsuteymið einnig sinna þjónustu við börn og ungmenni í heilbrigðisumdæmi Austurlands. Markmiðið er að efla þjónustu  fyrir börn og unglinga í nærumhverfi þeirra og fjölskyldna þeirra í góðu samstarfi við samstarfsstofnanir á við SAk, BUGL, Geðheilsumiðstöð barna, heilsugæslur í heimabyggð, skóla og félagsþjónustu. Bráðamálum verður sem áður sinnt á Sjúkrahúsinu á Akureyri en í samvinnu við geðheilsuteymi HSN til að tryggja samfellu þjónustunnar.

Sambíó

UMMÆLI