Nýr vefur kominn í loftið hjá LíforkuLjósmynd: Axel Þórhallsson

Nýr vefur kominn í loftið hjá Líforku

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra opnaði í dag í Hofi á Akureyri vefinn Líforka.is. Vefurinn er á vegum þróunarfélagsins Líforkuver sem var stofnað til að koma á fót líforkuveri á Dysnesi í Eyjafirði þar sem taka megi við dýraleifum til vinnslu.
Kristín Helga Schiöth er framkvæmdastjóri félagsins sem var stofnað í lok árs 2023 en hún hafði áður staðið í stafni verkefnisins hjá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Kristín fagnar aðkomu ríkisins að verkefninu sem sveitarfélögin tíu á Norðurlandi eystra hafa unnið markvisst að undanfarin ár.

Knýjandi þörf hefur verið fyrir söfnunarkerfi dýraleifa hér á landi en Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) höfðaði mál gegn Íslandi árið 2013 vegna ófullnægjandi innviða til förgunar á aukaafurðum dýra í samræmi við ákvæði EES-löggjafar og brotalama í opinberu eftirliti með aukaafurðum dýra. Ekki hefur fundist viðunandi lausn á málinu að mati ESA og var Ísland dæmt brotlegt með dómi EFTA dómstólsins í júlí árið 2022.

Að frumkvæði landshlutasamtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra var hafinn undirbúningur að slíkri vinnslu á Dysnesi í Eyjafirði í því markmiði að koma dýraleifum í viðeigandi úrvinnslu eða förgun. Líforkuver mun ekki aðeins draga úr urðun ólöglegs úrgangs heldur mun það einnig spila lykilhlutverk í að minnka losun gróðurhúsalofttegunda sem er í samræmi við loftlagsaðgerðir stjórnvalda og aðgerðaáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu.

„Samkvæmt áætlun er markmiðið að árið 2028 geti líforkuver tekið við tíu þúsund tonnum af lífrænu efni. Fyrir því mun ég berjast og stend heilshugar með því að líforkuver eigi að rísa hér vestan Akureyrar á Dysnesi” sagði matvælaráðherra við opnun vefsins.

„Líforkuverið í Dysnesi verður hjartað í þessu kerfi. Það er ekki aðeins endapunktur fyrir söfnun dýraafurða, heldur einnig dæmi um hvernig við getum breytt úrgangi í verðmæti; breytt því sem áður var vandamál í tækifæri fyrir orkuvinnslu og endurnýtingu í anda hringrásarhagkerfisins”.

Líforka.is mun veita aðgang að upplýsingum um framgang verkefnisins og mikilvægi þess fyrir samfélagið. Opnun vefsvæðisins undirstrikar áform stjórnvalda um að styrkja innviði sem stuðla að bættri vinnslu lífræns úrgangs að fyrirmynd hringrásarhagkerfisins. Í stjórn Líforkuvers sitja fulltrúar Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytis, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), Hörgársveitar, Akureyrarbæjar og Kjarnafæðis/Norðlenska.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó