NTC

Merki Coolbet fjarlægt af markaðsefni Einnar með öllu

Merki Coolbet fjarlægt af markaðsefni Einnar með öllu

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefur slitið samstarfi við veðmálafyritækið Coolbet eftir ábendingu frá fréttamanni á Vísi. Í umfjöllun Vísis um málið segir að talsmanni hátíðarinnar hafi brugðið þegar fréttamaður hafði samband og merki Coolbet hafi nú verið fjarlægt af öllu markaðsefni hátíðarinnar.

Talsmaður hátíðarinnar segist ekki hafa þekkt til starfsemi Coolbet og að veðmálafyrirtækið hafi haft samband af fyrra bragði og beðið um samstarfið. Hann sagði að ólögleg veðmálasíða fari ekki saman við fjölskylduhátíð og að samstarfinu yrði slitið samstundis.

Nánari umfjöllun má finna á Vísi.is með því að smella hér.

VG

UMMÆLI

Sambíó