Í gærkvöldi greindi Vikublaðið fyrst frá því að hluthafar í Kjarnafæði Norðlenska hf. hafa samþykkt tilboð Kaupfélags Skagfirðinga um kaup á allt að 100% hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf. Síðar gaf KN út tilkynningu þar sem segir að hluthafarnir Eiður Gunnlaugsson og Hreinn Gunnlaugsson sem eiga hvor um sig rúmlega 28% hlutafjár munu selja allt sitt hlutafé en hluthafar Búsældar ehf. munu hver fyrir sig ákveða hvort þeir selji sína hluti. Einnig segir í tilkynningunni:
Margir bændur hafa kallað eftir frekari hagræðingu í greininni eftir en möguleg samlegðaráhrif Kaupfélag Skagfirðinga og Kjarnafæði Norðlenska við slátrun og úrvinnslu kjötafurða eru líklega þau mestu í íslenskum landbúnaði og viðskiptin því eðlilegt framhald lagasetningarinnar. Það verður því í höndum þessara tveggja félaga bænda að vinna úr þeim ef viðskiptin verða að veruleika.
„Í kjölfar nýlegra breytinga á lögum hefur kjötgreinum á Íslandi verið gert mögulegt að hagræða á sama hátt og þekkist í öðrum löndum. Þessi viðskipti eru rökrétt framhald af þessum breytingum og líkleg til að auka hagsæld bænda og neytenda enda er verið að bæta samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu með því að gera verulega hagræðingu mögulega,“ er haft eftir Ágústi Torfa Haukssyni, forstjóra Kjarnafæðis Norðlenska, í tilkynningunni.
„Nú er það verkefni starfsfólks félaganna að raungera þessa hagræðingarmöguleika íslenskum landbúnaði og neytendum til heilla,“ er haft eftir honum að lokum.
UMMÆLI