Fyrstu djúpgámar á landsbygðinni teknir í notkun í KjarnagötuLjósmynd: Terra

Fyrstu djúpgámar á landsbygðinni teknir í notkun í Kjarnagötu

Fyrstu djúpgámar fyrir utan höfuðborgarsvæðið hafa verið teknir í notkun á Akureyri. Terra hefur selt yfir 700 djúpgáma á höfuðborgarsvæðinu og segist fyrirtækið spennt fyrir að sjá fleiri slíka í notkun á landsbyggðinni. Um er að ræða djúpgáma fyrir fjóra flokka; blandaðan úrgang, pappír, plast og matarleifar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Terra.

Þessa djúpgáma er að finna við Kjarnagötu 55-57 og segir í tilkynningu að þeir hafi vakið mikla lukku hjá íbúum, enda séu þau hjá Terra afskaplega stolt af þessum gámum, sem séu snyrtilegar og stílhreinar lausnir þegar kemur að úrgangsmálum.

Þessir Djúpgámar eru læstir og eru það sömu lyklar sem ganga að þeim og eru af sameigninni svo það á enginn að geta hent úrgangi í þessa gáma ef viðkomandi er ekki búsettur í Kjarnagötu 55-57.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó