Fimm bíla árekstur varð á Hörgárbraut á Akureyri í gær. Haft er eftir vaktmanni lögreglunnar á Norðurlandi eystra á vef Morgunblaðsins að sjúkrabíll hafi ekki verið sendur á vettvang og því líkur á að ekki hafi orðið meiriháttar meiðsl á fólki.
Áreksturinn varð rétt framan við hringtorg á Hörgárbraut þar sem ekið er inn í bæinn að norðanverðu.
Mynd: RÚV/Ágúst Ólafsson
UMMÆLI