„Það hefur sjaldan ef aldrei verið eins auðvelt að velja sterkasta leikmann umferðarinnar í Bestu deild kvenna,“ segir í umfjöllun Fótbolta.net um sterkasta leikmann 2. umferðar í Bestu deildar kvenna en Sandra María Jessen skoraði öll fjögur mörk Þórs/KA í 4-0 sigri gegn FH og er að sjálfsögðu sterkasti leikmaður 2. umferðarinnar.
Sandra María er markahæsti leikmaður deildarinnar eftir fyrstu tvær umferðirnar með fimm mörk í tveimur leikjum. Hún hefur skorað öll mörk Þór/KA í fyrstu tveimur leikjunum en liðið tapaði 3-1 fyrir Val í fyrstu umferðinni. Hér að neðan má sjá mörkin fjögur sem Sandra skoraði gegn FH.
Mynd: Fótbolti.net/Hafliði Breiðfjörð
Sandra María skoraði fyrstu fernu tímabilsins í sigri Þór/KA á FH🔥 #bestadeildin pic.twitter.com/4OHvguhzA3
— Besta deildin (@bestadeildin) April 28, 2024
UMMÆLI