Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur kynnt tillögu á breytingu á deiliskipulagi fyrir Hafnarstræti 87-89 á Akureyri. Breytingin snýr að því að nýta rými undur Kirkjutröppunum á Akureyrisem verslunar- og þjónusturými.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
- Stækka byggingarreit á lóð Hafnarstrætis 87-89, vegna fyrirhugaðrar stækkunar sem og að reitur innihaldi núverandi rými undir Kirkjutröppunum (er núna utan byggingarreits)
- Stækka rými (áður almenningssalerni) undir Kirkjutröppunum um u.þ.b. 70 til 90 m2. Loka og nýta rými í undirgöngum, u.þ.b. 70 m 2. Hönnun stækkunar miðast við að byggingin falli vel inn í umhverfið og skerði sem minnst ásýnd Kirkjutrappa og Akureyrarkirkju – sjá hugmynd að útliti í kynningu. Nýta rými undir Kirkjutröppum sem verslunar- og þjónusturými. Breyta hluta bílastæða norðan við rými í útisvæði sem yrði nýtt í tengslum við verslunar- og þjónusturými. Tvö stæði fyrir hreyfihamlaða verða áfram á núverandi stað.
- Uppfæra nýtingarhlutfall miðað við núverandi byggingarmagn á lóð og fyrirhugaða stækkun. Nýtingarhlutfall á lóðinni verður 2,50.
Tillöguuppdrætti má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 13. mars – 3. apríl 2024 og á heimasíðu bæjarins á sama tíma: www.akureyri.is – neðst á forsíðu undir: Auglýstar skipulagstillögur.
Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Hafnarstræti 87-89 – tillaga að breyttu deiliskipulagi (pdf)
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til 3. apríl 2024.
UMMÆLI