Norðurorka hefur birt tilkynningu á vef sínum þar sem fólk er hvatt til þess að fara varlega í kringum götuskápa. Í tilkynningunni segir að götuskápar verði reglulega fyrir tjóni vegna ákeyrslu.
„Í einhverjum tilfellum eru tjónin minniháttar þannig að skápurinn einungis skekkist lítillega en í öðrum tilfellum er tjónið meira og afleiðingarnar geta orðið alvarlegar. Fyrir utan rafmagnsleysi sem oft fylgir tjóni á götuskáp, þá geta götuskáparnir breyst í slysagildru og orðið hættulegir þeim sem þá snerta,“ segir í tilkynningu Norðurorku.
Hér má sjá tvo götuskápa sem keyrt hefur verið á nýlega. Fyrri skápurinn var í Hálöndum og ef vel er að gáð má sjá svartan blett inni í skápnum eftir ljósboga. Nú er búið að gera skápinn hættulausan og hefur honum verið skipt út. Seinni skápurinn var í Freyjunesi og er nú einnig búið að fjarlægja hann og koma öðrum fyrir.
Götuskápur í Hálöndum sem ekið hafði verið á.
Í nútímasamfélagi, sem háð er rafmagni öllum stundum, er gott til þess að vita að brugðist sé fljótt við atvikum sem þessum, hvort sem er á dagvinnutíma eða á öðrum tíma. Starfsfólk Norðurorku er meðvitað um mikilvægi þessarar þjónustu sem rafmagnsdreifing er og um sinn þátt í að hún sé alltaf til staðar og virki.
Ökum varlega í kringum götuskápa og látum vita ef við verðum vör við skemmdir á þeim.
- Sími: 460 1300
- Netfang: no@no.is
UMMÆLI