Nemendur úr DSA – Listdansskóla Akureyrar tóku þátt í undankeppni heimsmeistaramótsins Dance World Cup í Borgarleikhúsinu á mánudaginn. Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með glæsibrag í flokknum söngur og dans með 85 stigum. Þar að auki komu þær heim með fimm silfur og tvö brons. Yngsti keppandinn var aðeins 6 ára og fór heim með hvorki meira né minna en þrjú verðlaun.
Heimsmeistaramótið verður haldið í Prag í sumar, og þar hafa öll atriði DSA unnið sér inn keppnisrétt. Þetta er í fimmta sinn sem DSA – Listdansskóli Akureyrar tekur þátt í Dance World Cup en þar koma saman rúmlega 100.000 börn frá 50 löndum. Í ár verður keppnin haldin í Prague í Tékklandi.
UMMÆLI