Óþekkt efni lak niður á gólf í Endurvinnslunni á Akureyri sem tekur á móti flöskum og dósum. Þetta er haft eftir varðstjóra slökkviliðsins á Akureyri á vef mbl.is.
Lögreglan á Akureyri sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem greint var frá efnaleka á Furuvellum á Akureyri. Óskað var eftir því að að íbúar á Eyrinni, sunnan við Furuvelli, myndu halda sig innandyra og hafa glugga lokaða.
Sjá einnig: Íbúar á Eyrinni, sunnan við Furuvelli, haldi sig innandyra
„Það var óþekkt efni í litlum mæli sem heltist niður á gólfið og breiddist út fyrir húsið og urðu starfsmenn fyrir óþægindum. Það er búið að loka svæði sunnan við Endurvinnsluna,“ segir varðstjóri slökkviliðsins í samtali við mbl.is en slökkvilið og lögregla eru við störf á vettvangi. Endurvinnslan er til húsa við Furuvelli 11.
Ekki er vitað á þessari stundu hvaða efni er um að ræða en engin slys urðu á fólki og sagðist varðstjórinn ekki vita til þess að neinn hafi verið fluttur á sjúkrahús.
Á vef RÚV segir að börnum í Oddeyrarskóla hafi verið haldið inni vegna lekans og barst foreldrum skilaboð um að vera stutt úti þegar þau sækja börn að loknum skóladegi.
UMMÆLI