Björgunarþyrlan TF-LIF verður flutt til Akureyrar á næstunni þar sem hún verður til sýnis í Flugsafni Íslands um ókomin ár ásamt öðrum merkum vélum íslenskrar flugsögu. Vonir standa til að flytja hana til Akureyrar í næsta mánuði. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu.
TF-LIF kom til landsins árið 1995 og var í notkun fram til 2020. Alls voru það 1.565 manns sem var bjargað eða fluttir í sjúkraflugi með þyrlunni á 25 ára tímabili. Hún á því einstakan sess í björgunarsögu Íslands.
Í byrjun árs 2023 var TF-LIF sett í hefðbundið söluferli hjá Ríkiskaupum. Aðeins barst eitt tilboð, frá sænska fyrirtækinu EX-Change Parts AB. Fyrirtækið bauð 910.000 evrur í þyrluna og varahluti henni tengda. Það jafngildir um 130 milljónum íslenskra króna.
Svíarnir tóku úr þyrlunni þá hluti sem þeir töldu nýtilega. Að því búnu færðu færðu þeir Flugsafni Íslands á Akureyri þyrluna að gjöf.
Nánar má lesa um málið á mbl.is með því að smella hér.
Mynd: mbl.is/Árni Sæberg
UMMÆLI