Fjóla Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og knattspyrnumaðurinn Ívar Örn Árnason eignuðust son 9. janúar síðastliðinn. Þau greindu frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram en drengurinn er fyrsta barnið sem þau eignast saman.
Fjóla og Ívar eru búsett á Akureyri en Ívar er lykilmaður í knattspyrnuliði KA. Fjóla spilaði áður fótbolta með Fram í Reykjavík og þegar þau greindu frá því að þau ættu von á barni saman í júní á síðasta ári gerðu þau það með frumlegri færslu á Instagram:
„Félagskiptaglugginn opnaði fyrr í H3 og við höfum gert 18 ára samning við mjög efnilegan leikmann sem kemur til leiks snemma í janúar. Ekki er vitað um þyngd, hæð né kyn leikmannsins eins og stendur en fleiri upplýsingar verða tilkynntar seinna,“ skrifuðu þau þá.
UMMÆLI