Framsókn

Hanna Dóra tekin við sem nýr formaður BKNE

Hanna Dóra tekin við sem nýr formaður BKNE

Á fundi stjórnar Bandalags kennara á Norðurlandi eystra, BKNE, í gær, 26. október, var lögð fram bókun þar sem sagt er að kjör nýs formanns félagsins sé bindandi. Hanna Dóra Markúsdóttir tók því við sem nýr formaður í gær.

Kjör nýs formanns Bandalags kennara á Norðurlandi eystra var sagt ógilt í tilkynningu sem birtist á Facebook-síðu félagsins fyrr í vikunni og í kjölfarið sendi stjórn BKNE frá sér eftirfarandi bókun:

„Aðalfundur BKNE hefur æðsta vald í málum svæðafélagsins. Staðið var í einu og öllu rétt að málum lögum samkvæmt, bæði hvað varðar boðun aðalfundar, tilkynningu um lagabreytingartillögur og kosningar. Ákvarðanir sem aðalfundur BKNE samþykkti þann 5. október sl. eru því bindandi. Stjórn BKNE fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda og ber að taka ákvarðanir með hag félagsmanna að leiðarljósi í samræmi við niðurstöðu aðalfundar. Með vísan til framangreinds er Hanna Dóra Markúsdóttir rétt kjörinn formaður BKNE samkvæmt niðurstöðu aðalfundar og tekur hún við formennsku félagsins frá og með deginum í dag,“ segir í bókuninni sem var lögð fram í gær.

„Tilefni ofangreindrar bókunar er bréf frá lögmanni Helgu Daggar Sverrisdóttur fráfarandi formanns BKNE þar sem gerðar voru ýmsar athugasemdir við verklag í tengslum við aðalfund félagsins og á því byggt að kosning nýs formanns hafi verið ólögleg. Undirritaðar stjórnarkonur leituðu álits lögfræðistofu sem komst að því eftir að hafa farið yfir öll gögn í málinu, að athugasemdir lögmanns Helgu Daggar standist ekki skoðun og að í einu og öllu hafi verið staðið rétt að málum samkvæmt lögum félagins, bæði hvað varðar boðun aðalfundar, tilkynningu um lagabreytingartillögur og kosningar. Ákvarðanir sem aðalfundur BKNE samþykkti þann 5. október sl. séu því bindandi og ekki hægt að efast um lögmæti þeirra,“ segir í tilkynningu frá Stjórn BKNE

Í tilkynningunni segir enn fremur að stjórn BKNE vonist nú til að ofangreindu máli sé lokið og að hægt verði að einbeita sér að því að efla samvinnu og samstöðu félagsmanna og vinna að bættum kjörum og starfsskilyrðum þeirra eins og hlutverk BKNE gengur út á.

Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, Jónína Vilborg Karlsdóttir, Erla Rán Kjartansdóttir og Sigríður Sigmundsdóttir sendu frá sér tilkynninguna fyrir hönd BKNE.

VG

UMMÆLI

Sambíó