Við búum í samfélagi þar sem við viljum að öllum séu tryggðir öruggir innviðir.
,,Byggðaáætlun skal hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um land allt. Sérstök áhersla skal lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf,“ segir í byggðaáætlun.
Til þess að mæta þessu þurfa innviðir að mæta þörfum samfélagsins. Samt er það svo að víða um land er stöðugt verið að skerða þjónustu og sum staðar glittir ekki í að grunnþjónusta verði bætt þrátt fyrir mikla þörf. Ég tek hér nýleg dæmi af Norðurlandi og Austurlandi.
Skert póstþjónusta
Í febrúar síðastliðnum boðaði Pósturinn breytingar á póstþjónustu á Grenivík og sagði upp samningi við þjónustuaðila sinn á staðnum. Þrátt fyrir umsagnir, ábendingar og fund sveitarstjórnar með innviðaráðherra virðist ekkert tillit hafa verið tekið til þessara ábendinga enda fór svo að var skert 1. september. Þó svo að póstsendingum fækki og mikið af samskiptum og sendingum fari orðið fram á netinu, eru ákveðnar sendingar sem munu alltaf þurfa á öruggri póstdreifingu að halda. Til þess að tryggja að öllum borgurum sé veitt grunnpóstþjónusta á jafnréttisgrundvelli leggja stjórnvöld um allan heim ákveðnar skyldur á þjónustufyrirtæki. Í póstþjónustu er það svokölluð alþjónustuskylda sem felur í sér tilteknar kröfur, svo sem skyldu til að safna saman og flytja póst.
Slæmt fjarskiptasamband ógnar öryggi
Sveitarfélagið Múlaþing hefur ítrekað vakið athygli á því hversu slæmt fjarskiptasamband er á ákveðnum svæðum dreifbýlis og óbyggða innan sveitarfélagsins meðal annars með öryggissjónarmið í huga. Samkvæmt nýlegri bókun sveitarfélagsins þykir atburður við Laugavalladal, þegar ferðmaður lést þar vegna veikinda í lok ágúst, varpa ljósi á mikilvægi þess að við þessu verði brugðist með viðunandi hætti.
Það var tilkynnt á dögunum að Míla muni bjóða viðskiptavinum tífalt hraðari ljósleiðaratengingu á völdum svæðum innan höfuðborgarsvæðis strax 1. október. Þetta eru auðvitað góðar fréttir fyrir höfuðborgarbúa en fær mig til að hugsa til þeirra heimila og fyrirtækja á landsbyggðinni sem eru enn með mjög slæmt netsamband og sum hver jafnvel ekki enn komin með 3 fasa rafmagn.
Krafan er jöfnuður óháð efnahag og búsetu
Ég verð alltaf ólýsanlega döpur þegar fréttir berast af skertri grunnþjónustu á landsbyggðinni. Við sjáum allt of oft samgönguverkefnum frestað og ýmsum þjónustueiningum á landsbyggðinni lokað. Alltaf snýst það jú um peninga, sparnað og forgagnsröðun. Jöfnuður felst í því að við getum öll notið sömu innviða og grunnþjónustu óháð efnahag og búsetu. Þegar grunnþjónusta er annars vegar er einfaldlega ekki hægt að horfa í arðsemiskröfuna eina saman. Það er eðlilegt að þjónusta kosti og við sem samfélag þurfum að huga fyrst að öryggi íbúa alls staðar á landinu áður en við horfum í krónurnar.
Höfundur: Jódís Skúladóttir
þingmaður Vinstri grænna
UMMÆLI