Framsókn

Hugmyndir um verslunar- og þjónusturými undir kirkjutröppunum

Hugmyndir um verslunar- og þjónusturými undir kirkjutröppunum

Reginn Fasteignafélag keypti gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju í maí 2022. Samhliða framkvæmdum sem standa nú yfir á kirkjutröppunum hefur Reginn í samstarfi við AVH skoðað framtíðarnotkun á gömlu náðhúsunum.

Reginn keypti húsin með þeim skilyrðum að endurbætur yrðu gerða á tröppunum. Í tilkynningu á samfélagsmiðlum Regins segir: „Samkomulagið fellst í að núverandi kirkjutröppur verða rifnar og þær endursteyptar og uppfærðar með nýrri lýsingu, snjóbræðslu og nýjum granít stein.“

Hugmyndir um skemmtileg verslunar- og þjónusturými með möguleg tengsl við KEA hafa verið til skoðunar, en Reginn á húsnæðið sem hýsir Hótel KEA. Horft hefur verið til að byggja viðbyggingu sem vinnur saman með umhverfinu í kring og dregur ekki úr ásýnd kirkjutrappanna.

Framkvæmdir hófust í byrjun júlí og eru áætluð verklok í október.

VG

UMMÆLI

Sambíó