Verkmenntaskólinn á Akureyri mun bjóða upp á kvöldskólanám í húsasmíði, frá haustönn 2023. Námið tekur fjórar annir. Þetta kemur fram á vef skólans.
Á vef skólans segir að miðað sé við að nemandi hafi náð 23 ára aldri og/eða hafi viðeigandi starfsreynslu. Æskilegt er að nemendur séu komnir á námssamning eða hafi samningsloforð. Einnig er æskilegt að almennum greinum sé lokið en annars þarf að taka þær í dagskóla, fjarnámi eða símenntunarmiðstöðvum. Nemendur sem hafa undirgengist raunfærnimat fá viðkomandi áfanga metna og þær upplýsingar þurfa að fylgja umsókn.
Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Alla jafna er kennt er þrjá daga í viku, mánudaga til miðvikudaga frá kl 17:00-21:00. Kennsla hefst 21. ágúst og stendur í 16 vikur. Umsóknartengill er hér.
UMMÆLI