Nýtt Þróunarfélag Hríseyjar heldur stofnfundByggðaþróunarverkefnið Áfram Hrísey heldur ótrautt áfram.

Nýtt Þróunarfélag Hríseyjar heldur stofnfund

Fimmtudaginn 22. júní næstkomandi verður stofnfundur haldinn fyrir Þróunarfélag Hríseyjar, sem kynnt var fyrir eyjaskeggjum 3. júní síðastliðinn, en kynningin var hluti af Sjómannadags hátíðhöldum í eyjunni.

Fyrir um það bil ári síðan fengu Hríseyingar styrk frá innviðaráðuneytinu, með stuðningi SSNE, fyrir byggðaþróunarverkefninu Áfram Hrísey og er stofnun þróunarfélags þáttur í því verkefni. Að sögn Ásrúnar Ýr Gestsdóttur, verkefnastýru Áfram Hrísey, er hlutverk þróunarfélagsins að gefa öllum þeim sem er annt um hagsmuni eyjunnar og hafa áhuga á uppbyggingu þar, vettvang til að standa saman.

Á hrisey.is, vef Ferðamálafélags Hríseyjar, kemur fram að Þróunarfélag Hríseyjar verði leiðandi í almennri byggða- og uppbyggingaþróun í Hrísey í samvinnu við íbúa, fyrirtæki og félög í Hrísey ásamt Akureyrarbæ. Þá falli byggðaþróun, atvinnuþróun og íbúaþróun þar undir. Unnið verði að verkefnum og sótt um styrki í nafni Þróunarfélagsins sem ekki muni skarast á við styrki og verkefni sem Ferðamálafélag Hríseyjar sækir um og vinnur að.

Stofnfundurinn verður haldinn í Hlein klukkan 20:00 en þeir sem ekki sjá sér fært að mæta eru hvattir til þess að hafa samband við Ásrúnu Ýr í gegnum netfangið afram@hrisey.is eða í síma 866-7786.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó