Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu 17 á Akureyri

Ævintýragarðurinn við Oddeyrargötu 17 á Akureyri

Listamaðurinn Hreinn Halldórsson hefur ákveðið að endurtaka leikinn frá síðasta sumri og veita aðgang að garðinum sínum við Oddeyrargötu 17 á Akureyri fyrir almenning. Hreinn hefur á undanförnum árum skapað hin ýmsu verk úr íslenskum bókmenntum og ævintýrum sem hann hefur staðsett í garðinum.

„Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Ég hef fundið fyrir áhuga ferðamanna og ekki síður Íslendinga á að skoða verkin mín og varð það til þess að á síðasta sumri opnaði ég aðgang að garðinum mínum fyrir almenning. Opnunin á garðinum gekk vel og var umgengni gesta til fyrirmyndar. Ég hef því ákveðið að endurtaka þessa opnun og verður garðurinn sem ég kalla Ævintýragarðinn opinn alla daga í sumar frá klukkan 10:00 til 20:00,“ segir Hreinn.

Aðgangur er ókeypis eins og ávallt hefur verið og myndatökur leyfðar. Við flest verkin er stuttur texti bæði á íslensku og ensku með nafni verksins og úr hvaða ævintýri það er tekið.

„Garðurinn er einkagalleríið mitt, lifandi undir berum himni. Þar er lofthæðin endalaus og lýsingin síbreytileg. Ég get fullyrt að það eru ekki mörg gallerí á Íslandi þar sem búast má við rigningu eða jafnvel snjókomu og roki þegar gengið er um galleríið og verkin skoðuð. Oftast er þó glampandi sól, logn og þægilegur útihiti eins og Akureyri er þekkt fyrir,“ segir Hreinn.

Verkin má flest rekja til íslenskra bókmennta og ævintýra en síðustu ár hefur listsköpun Hreins snúið að sígildum ævintýrum sem eru honum minnisstæð frá bernskuárum sínum.

„Verkin eru heimakær og vilja ekki yfirgefa garðinn en þó hafa sum þeirra sýnt sig á á Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit og í sýningarrými Amtsbókasafnsins á Akureyri. Í sumar hafa bæst við fimm nettar dömur í þjóðlegum fatnaði. Systurnar frá Stapa kalla þær sig, en samkvæmt mínum upplýsingum voru þær bara þrjár en hjá mér eru þær fimm. Þær líta frekar fínt á sig og ætla að halda sig í sumar inn í gróðurhúsinu en eru þó alltaf til í að spjalla við gesti,“ segir Hreinn.

UMMÆLI