A! Gjörningahátíð

Fimm hundraðasti rampurinn vígður á AkureyriHildur Sigurgeirsdóttir átti þann heiður að vígja fyrsta rampinn á Norðurlandi á Húsavík í síðustu viku

Fimm hundraðasti rampurinn vígður á Akureyri

Síðustu vikur hefur tugum nýrra hjólastólarampa verið komið upp á Akureyri og laugardaginn 20. maí kl. 15 ætla aðstandendur verkefnisins „Römpum upp Ísland“ að vígja 500. rampinn við skemmtistaðinn Vamos á Ráðhústorgi á Akureyri.

Bæjarfulltrúarnir Hlynur Jóhannsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir segja nokkur orð og Sigrún María Óskarsdóttir vígir 500. rampinn. Haraldur Þorleifsson, hugmyndasmiður og helsti styrktaraðili verkefnisins, verður viðstaddur.

Boðið verður upp á tónlistaratriði og óáfengan sumardrykk.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó