Fyrrum nemandi Menntaskólans á Akureyri hefur fengið afsökunarbeiðni frá skólameistara skólans. Nemandinn neyddist til að hætta í Menntaskólanum á Akureyri vorið 2021 vegna sögusagna og alvarlegra ásakana.
Í tilkynningu á vef MA segir að skólinn hafi unnið með mál nemandans, tekið virkan þátt í vinnu mennta- og barnamálaráðuneytisins um nýja viðbragðsáætlun í málum af þessu tagi og muni innleiða hana þegar hún verður birt á næstu vikum.
„MA lítur málið alvarlegum augum enda hafa þessar sögusagnir haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir umræddan nemanda. Af hálfu skólans er hann beðinn afsökunar á að ekki hafi tekist að rétta hlut hans meðan á námi hans stóð í MA og standa vörð um hans rétt.“
Þegar samskonar ásakanir komu upp í Menntaskólanum við Hamrahlíð í haust gagnvart sama nemanda voru þær skoðaðar af ráðgjafarhópi á vegum mennta-og barnamálaráðuneytis og reyndust ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum.
Sjá yfirlýsingu MH: https://www.mh.is/is/frettir/vegna-eineltismala-sem-tilkynnt-voru-til-mh-i-kjolfar-nafnaritunar-innan-veggja-skolans
UMMÆLI