Gæludýr.is

Fleiri opnunardagar og meiri tekjur af rekstri HlíðarfjallsSumar á útivistarsvæðinu í Hlíðarfjalli. Myndin er tekin á leiðinni upp á fjallsbrún. Mynd: María Helena Tryggvadóttir/Akureyri.is.

Fleiri opnunardagar og meiri tekjur af rekstri Hlíðarfjalls

Tekjur af rekstri skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli ukust um á aðra milljón á milli ára og gestir á svæðinu voru liðlega 2000 fleiri en árið áður veturinn 2022-2023. Opið var í 105 daga samanborið við 99 veturinn áður. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar þar sem segir að veturinn 2022-2023 hafi verið mjög góður á skíðasvæðinu.

„Páskarnir voru mjög góðir. Þá komu um 9.500 gestir í fjallið og veður var eins og best verður á kosið. Fjölmörg mót sem áttu að fara fram á öðrum skíðasvæðum voru færð til Hlíðarfjalls enda hélst snjórinn betur þar en víðast annars staðar á skíðasvæðum landsins. Þar fyrir utan gekk snjóframleiðslan vel og voru sjóbyssurnar á fullu í 22 daga þennan vetur en meðaltal fyrri ára er 7-10 dagar. Nýja stólalyftan, Fjallkonan, var keyrð í 23 daga sem er um það bil fjórðungur af opnunardögum vetrarins í Hlíðarfjalli,“ segir á vef bæjarins.

Gönguskíðabrautin er nú enn opin í Hlíðarfjalli en um þessar mundir er verið að undirbúa sumaropnun á skíðasvæðinu fyrir útivistarfólk. Áætlað er að hjólagarður verði opinn frá 12. júlí til 12. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann til að koma sér hærra í fjallið en hann mun ganga á fimmtudögum og föstudögum frá klukkan 17 til 21, á laugardögum klukkan 10 til 17 og sunnudögum 10 til 16. Áætlað er að Fjallkonan verði opin frá 22. júlí til 20. ágúst, samtals fimm helgar á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 10 til 15.

Farið verður í umfangsmikla og kostnaðarsama viðhaldsvinnu í sumar, meðal annars við Fjarkann og Fjallkonuna. Einnig verður nýr vír settur í Stromplyftuna, gírabúnaður endurnýjaður í Hjallabraut og svo mætti áfram telja. Þar fyrir utan er tímabært að ráðast í ýmsar framkvæmdir og endurnýjun á húsakosti svæðisins. Viðamesta framkvæmd sumarsins á skíðasvæðinu er bygging nýrrar vélageymslu, reisulegs stálgrindarhúss, og eru áætluð verklok 2024.

VG

UMMÆLI