Gæludýr.is

Segja óprúttna aðila hafa sent falsaða fréttatilkynningu og sett upp falska heimasíðuMynd: Samherji.is

Segja óprúttna aðila hafa sent falsaða fréttatilkynningu og sett upp falska heimasíðu

Á heimasíðu Samherja í dag birtist tilkynning þar sem segir að óprúttnir aðilar hafi sent falsaða fréttatilkynningu í nafni Samherja til erlendra fjölmiðla. Þá segir einnig að sömu aðilar hafa sett upp falska heimasíðu í nafni fyrirtækisins sem hýst er í Bretlandi og samhliða dreift fölsuðum auglýsingaborðum.

„Tekið skal fram að hvorki heimasíðan né fréttatilkynningin hafa nein tengsl við Samherja eða starfsmenn fyrirtækisins. Svo virðist sem um sé að ræða skipulagða árás sem fyrirtækið tekur mjög alvarlega. Samherji mun óska eftir því að hin falska vefsíða verði tekin niður,“ segir í tilkynningu Samherja.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó