Veitingahúsið Greifinn á Akureyri hefur gert styrktarsamning við hjólreiðakonuna Hafdísi Sigurðardóttir. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins.
Hafdís átti ótrúlegu gengi að fagna á síðasta keppnisári og er ríkjandi Íslands og bikarmeistari í bæði götuhjólreiðum og tímatöku kvenna auk þess sem hún var valin Íþróttakona Akureyrar og Hjólreiðakona Íslands.
„Við á Greifanum viljum standa við bakið á Hafdísi enda mikilvægt að fyrirtækin í bænum styðji við afreksfólkið okkar og hefur Hafdís sýnt það og sannað að hún er ekki einungis afbragðs keppnismanneskja heldur frábær fyrirmynd sem hefur eflt hjólreiðar á svæðinu og hvatt aðra áfram til árangurs” segir í tilkynningu. Hafdís mun keppa á Reykjanesi um helgina á fyrstu bikarmótum sumarsins.
Hafdís segir það gríðarlega mikilvægt fyrir sig að jafn þekkt og öflugt fyrirtæki og Greifinn velji að verða bakharl hjá sér enda ærinn kostnaður að vera íþróttamaður á landsbyggðinni.
UMMÆLI