A! Gjörningahátíð

Setja upp rampa á AkureyriFrá framkvæmdum i miðbæ Akureyrar í morgun. Mynd: Vikublaðið

Setja upp rampa á Akureyri

Nú standa yfir i miðbænum á Akureyri framkvæmdir við að setja upp rampa við verslanir og veitingahús á Akureyri. Framkvæmdirnar eru hluti af átakinu Römpum upp Ísland. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins.

Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi . Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins.

Alls verða 1500 rampar settir upp á Íslandi en Steindór Ívar Steindórsson hjá Umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar segir í samtali við Vikublaðið að ramparnir verði á bilinu 40 til 50 á Akureyri. 

„Flestir i miðbænum en eins  við Glerárgötu, úti i þorpi  og víðar. Einnig verður farið til Húsavíkur  og rampað upp þar,“ sagði  Steindór Ívar í Vikublaðinu.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó