Árni Þór Árnason, matreiðslumeistari, er nýr yfirkokkur á veitingastaðnum Rub23 á Akureyri. Árni hóf störf á mánudaginn, 1. maí. Hann starfaði áður sem yfirkokkur á Strikinu á Akureyri en lét af störfum í september í fyrra og hóf störf sem „Chef and catering manager“ í vinnubúðunum á Grenivík þar sem unnið er við hótelið Höfði Lodge. Þetta kemur fram á Veitingageirinn.is.
„Rub23 er alltaf Rub23 og er búið að skapa sér nafn og concept eins og fólk þekkir. Það verða ekki miklar breytingar til að byrja með svona fyrir sumarið, heldur smyrja vélina bara og fara yfir hlutina. Svo með haustinu fara kannski að sjást einhverjar breytingar, nýir réttir og vonandi eitthvað meira spennandi,“ sagði Árni í samtali við Veitingageirann.
Árni er einnig einn af forsprökkum Arctic Challenge sem eru félagssamtök gerð til þess að efla hugvit og ástríðu veitingamanna á Norðurlandi.
Sjá einnig: Snædís og Andri stóðu uppi sem sigurvegarar í Arctic Challenge
UMMÆLI