A! Gjörningahátíð

Gatnamótin við Kaupvangstorg lokuðKaupvangstorg um hádegisbil í dag, 2. maí. Mynd: Almar Alfreðsson.

Gatnamótin við Kaupvangstorg lokuð

Gatnamót Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis verða lokuð fram undir helgi vegna framkvæmda og búast má við talsverðri röskun á umferð um miðbæinn næstu þrjá daga eða svo. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Ryðja þarf í burtu hluta af hellulögn og malbika Kaupvangstorgið sjálft. Ákveðið var að flýta framkvæmdinni vegna hagstæðra veðurskilyrða í vikunni. Áætlað er að verkið taki um þrjá daga, því verði lokið fyrir helgi og umferð þá aftur hleypt á gatnamótin.

„Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu bæjarins.

VG

UMMÆLI