Framsókn

Samherji í 40 ár á Akureyri

Samherji í 40 ár á Akureyri

Nákvæmlega 40 ár eru í dag liðin frá því togarinn Guðsteinn GK 140 sigldi inn Eyjafjörð. Frændurnir Kristján Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelmsson höfðu þá keypt nær allt hlutafé í Samherja hf. í Grindavík, sem hafði gert Guðstein út og fluttu þeir félagið til Akureyrar. Hófst þar með saga félags, sem hefur frá þeim degi dafnað og vaxið í að vera eitt stærsta og öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, með rekstur í útgerð, landvinnslu, fiskeldi og sölu sjávarafurða.

Guðsteini var breytt í frystitogara og bar nafnið Akureyrin EA 10. Fróðleg og skemmtileg grein er um sögu Akureyrinnar ásamt fjölda mynda á síðunni Saga Akureyrinnar.

Skrifstofan í byrjun við eldhúsborðið

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segist muna vel eftir deginum þegar Guðsteinn sigldi inn Eyjafjörðinn fyrir sléttum fjörutíu árum síðan.

Frændurnir drógu íslenska fánann að húni á Guðsteini á heimsiglingunni

„Við vorum sannfærðir um að hægt væri að breyta Guðsteini í gott frystiskip, sem kom reyndar á daginn. Í byrjun komst skrifstofan fyrir á eldhúsborði en í dag eru starfsmenn um átta hundruð og umfangið telst vera umtalsvert á íslenskan mælikvarða. Eins og gefur að skilja hefur gengið á ýmsu í rekstrinum, rétt eins og hjá öllum atvinnugreinum og þjóðinni allri. Við höfum verið óhrædd við að feta nýjar slóðir, bæði hvað varðar útgerð og vinnslu, alltaf með í huga að bæta gæði afurðanna jafnt á við öryggi og aðbúnað starfsmanna. Þróunin hefur verið mjög mikil til dæmis í tækni og ég er stoltur af hvernig til hefur tekist.

Þessi tímamót eru í mínum huga ljúfsár, Samherji hefur misst menn og það setur mark sitt á þessa fjörutíu ára vegferð. Sjómennska hefur verið og er enn hættulegt starf, þeir sem sækja sjóinn og ástvinir þeirra leggja mikið á sig.

Sem betur fer hafa orðið stórstígar framfarir hvað varðar bættan aðbúnað sjómanna, við leggjum mikla áherslu á öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmál og við viljum vera leiðandi í þeim efnum, bæði til sjós og lands.

Akureyrin EA nýmáluð og skveruð á reynslusiglingu

Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa með hæfileikaríku fólki hvaðanæva að  – með ólíkan bakgrunn og ólíka sögu – við að gera hlutina betur í dag en í gær, þar sem liðsheildin er í fyrirrúmi. Sumir hlutir hafa ekki gengið upp, aðrir hafa borið ávöxt og verið til gagns.

Það eru ýmis verkefni í gangi hjá okkur svo sem uppbygging í fiskeldi á landi og kynslóðaskiptin sem orðið hafa í félaginu gefa manni trú á að framtíðin sé björt,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Samherji leiðandi fyrirtæki í sjávarútvegi

Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja tekur í sama streng og Þorsteinn Már, 1. maí 1983 er honum í fersku minni.

„Veðrið var gott og fjöldi manns fylgdist með skipinu sigla inn fjörðinn. Eins og efnahagsástandið var á þessum tíma er vel skiljanlegt að 

Hátæknin er áberandi

margir hafi eindregið varað okkur við því að fara út í útgerð, enda rekstur greinarinnar svo að segja í molum. En við trúðum á sjálfa okkur og margir voru tilbúnir til að leggjast á árarnar með okkur. Sjávarútvegurinn hefur tekið miklum breytingum á þessum áratugum, rétt eins og aðrar atvinnugreinar.

Togarafloti Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa hefur verið í stöðugri þróun og er í dag öflugur og vel búinn á allan hátt og sömu sögu er að segja um vinnsluhúsin. Hátæknin í vinnsluhúsunum á Akureyri og Dalvík er í raun afrakstur þróunarsamstarfs Samherja og fyrirtækjanna sem framleiddu búnaðinn. Í mörgum tilvikum er um að ræða sérhæfðar lausnir sem byggja á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, sem við Íslendingar getum verið stoltir af. Þetta á einnig við um skipin sem félagið hefur látið smíða á undanförnum árum.

Ég er bæði bjartsýnn og þakklátur á þessum tímamótum og hlakka til að takast á við verkefni framtíðarinnar með því góða fólki sem starfar hjá félaginu.“

Heimir Tómasson hefur fylgt Samherja svo að segja frá upphafi

Alltaf óhræddir við að innleiða nýjungar

Heimir Tómasson vélstjóri hefur starfað hjá Samherja í tæp fjörutíu ár, hann lætur innan tíðar af störfum. Heimir hefur því fylgst vel með rekstri Samherja frá upphafi.

„Ég vann hjá Útgerðarfélagi Akureyringa þegar frændurnir keyptu Guðstein á sínum tíma. Fljótlega byrjuðum við vinnufélagar Kristjáns Vilhelmssonar á verstæði ÚA að rífa og tæta í Guðsteini og veitti ekkert af. Síðan leysti ég af á Akureyrinni sumrin 1984 og 85 og árið eftir var ég fastráðinn. Síðar fór ég yfir á Baldvin Þorsteinsson EA 10 en síðustu tvo áratugina hef ég verið í landi og sinnt ýmsum verkefnum í tengslum við útgerðina. Samstarfið við frændurna hefur alltaf verið mjög gott enda er fyrirtækið þekkt fyrir að gera vel við sitt starfsfólk og þess vegna starfsaldur margra hár. Þetta hefur verið afskaplega skemmtilegur tími og ég kveð Samherja sáttur, þótt lyklunum verði ekki skilað alveg strax. Ég er bjartsýnn á framtíðina og ég segi hiklaust að Samherji sé í fararbroddi á mörgum sviðum.“

Áhöfnin á Akureyrinni fagnar mettúr sumarið 1985. Sitjandi fremst: Páll Valdimarsson, Konráð Alfreðsson, Brynjar Jacobsen, Brynjólfur Jónsson, Baldvin Loftsson, Hrafn Ingvason og Arngrímur Brynjólfsson. Fyrir miðju: Hákon Þröstur Guðmundsson, Stefán Ingvason, Erling Ingvason, Kristján Frðriksson, Friðrik Árnason, Heiðar Sigurbjörnsson, Sveinbjörn Hjörleifsson, Jón Stefánsson, Jón Ívar Halldórsson og Heimir Tómasson. Aftast: Hulda Árnadóttir, Oddur Árnason, Hreinn Pálmason, Inga Jóna Steingrímsdóttir, Steingrímur Einarsson, Jón Óskarsson, Birgir Örn Arnarson, Hörður Már Guðmundsson og Rúnar Jóhannsson.
Lögð er áhersla á tæknilega fullkomnun og hagkvæmni skipa félagsins. Björg EA 7, Björgúlfur EA 312 og Kaldbakur EA 1. Skipin voru smíðuð í Tyrklandi 2017 og hafa reynst afar vel. Allur tækjabúnaður og aðbúnaður er góður.
Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA11 kemur nýr til Akureyrar. Baldvin Þorsteinsson EA 10 er fjær. September 2000. Bæði þessi skip voru vel búin á allan hátt.
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 er afar vel útbúið skip á allan hátt. Smíðað í Danmörku 2021
Í ágúst 2020 var tekið í notkun nýtt og tæknilega fullkomnasta fiskvinnsluhús landsins. Starfsemi hússins er á 9.000 fermetrum og er allur búnaður og aðbúnaður starfsfólks eins og best verður á kosið. Aðaláhersla er lögð á vinnslu þorsks og ýsu og er vinnslan mjög sérhæfð þar sem allar afurðir eru ferskar eða lausfrystar. Framleiddir eru ferskir, sérskornir bitar og fiskkökur af ýmsum stærðum og gerðum, allt eftir þörfum kaupenda hverju sinni. Hluta framleiðslunnar er pakkað í umbúðir sem seldar eru beint á neytendamarkað í stórmörkuðum erlendis. Mikil áhersla er lögð á gæði og hreinlæti og er húsið samþykkt af helstu verslunarkeðjum í Evrópu. Framleiðslukerfið er tölvustýrt og skráningar tryggja rekjanleika vörunnar frá veiðum til viðskiptavinar. Við bryggju eru Björg EA 7 og Björgúlfur EA 312
Fiskiðjuver Útgerðarfélags Akureyringa: Þar fer fram tæknivædd bolfiskvinnsla, þar sem unnar eru ferskar og frystar afurðir á neytendamarkaði. Árið 2015 var byggt og tekið í notkun nýtt hús á lóðinni sem hýsir fullkomna pökkunarstöð fyrir bæði ferskar og frosnar afurðir auk hitastýrðs afgreiðslurýmis. Húsið er hannað til að mæta ýtrustu kröfum fyrir framtíðar fiskvinnsluFiskiðjuver Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri er vel ítbúið vinnsluhús. Við byrggju eru Björgúlfur EA 312, Björg EA 7 og Cuxhaven NC 100
Fiskeldi Samherja kemur að öllum stigum eldis og vinnslu, all frá hrognum til neytenda. Samherji fiskeldi ehf. rekur eina klakfiskastöð að Sigtúnum í Öxarfirði, eina klakstöð fyrir hrogn að Núpum í Ölfusi, þrjár seiðastöðvar og tvær áframeldisstöðvar fyrir bleikju, aðra á Stað við Grindavík og hina að Vatnsleysuströnd. Einnig rekur fyrirtækið eina strandeldistöð fyrir lax að Núpsmýri í Öxarfirði. Allt eru þetta landeldisstöðvar sem nýta jarðvarma og notast við borholuvatn, ýmist ferskt eða ísalt, við framleiðslu á hágæða eldisfiski. Til að vinna afurðir frá eldinu eru starfræktar tvær vinnslur, önnur í Öxarfirði þar sem laxi er slátrað og pakkað og síðan fullkomin hátæknivinnsla í Sandgerði þar sem bleikju er slátrað og hún unnin í fjölbreyttar neytandaumbúðir. Mynd: Staður við Grindavík
Á undanförnum árum hefur Samherji náð góðum árangri í markaðssetningu á ýmsum sjávarafurðum um víða veröld. Ice Fresh Seafood annast sölu afurða Samherja, dótturfélaga þess og annarra framleiðenda.Veglegur bás á alþjóðlegri sjávarútvegssýningu í Barcelona. 2023
Samfélagsstyrkir veittir til íþrótta- og menningarmála. 2011.
Starfsfólk frystihússins á Dalvík. 2003
Starfsfólk Strýtu 2003
Sjómannadagurinn 1996. KA heimilið á Akureyri

Umfjöllun og myndir: Samherji.is

Sambíó

UMMÆLI