A! Gjörningahátíð

Allt að 3.000 gestir í bænum í tilefni Andrésar andar leikannaMynd: Ellert Örn Erlingsson/Akureyri.is

Allt að 3.000 gestir í bænum í tilefni Andrésar andar leikanna

Andrésar andar leikarnir standa nú sem hæst í Hlíðarfjalli og er talið að allt að 3.000 gestir séu í bænum af því tilefni. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með yfir 800 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 3.000 manns sæki leikana með einum eða öðrum hætti.

Keppendur koma frá 15 félögum á Íslandi. Flestir koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 131 keppandi, en Ármann/Fram eru næst fjölmennastir með 97 þátttakendur. Í ár tekur metfjöldi þátt í skíðagöngu og eru 144 börn skráð þar til leiks. Þátttakendur í Alpagreinum eru 606 og 78 taka þátt í snjóbrettagreinum.

„Andrésarleikarnir eru afar mikilvægur viðburður fyrir alla bæjarbúa, fyrirtækin í bænum, barnamenningu bæjarins, ásamt því að vera mikilvægasti einstaki vetraríþróttaviðburður sem fram fer hér á svæðinu á hverju ári,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar en nánar má lesa um mótið á vef bæjarins með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó