Í morgun klukkan 8 mældist 4,2 stiga jarðskjálfti á 10 kílómetra dýpi tæplega 35 kílómetrum vestur af Grímsey. Þetta kemur fram á Vísi í dag.
Þar segir að nokkrir eftirskjálftar yfir tveimur að stærð hafi mælst síðan þá. Nokkrum mínútum áður en stóri skjálftinn varð höfðu minni skjálftar mælst en eftirskjálftarnir urðu töluvert fleiri.
Enginn þeirra var þó yfir þrír að stærð en sá stærsti mældist 2,6.
UMMÆLI