NTC

Yfirlýsing frá bæjarstjórn Akureyrar: „Fögnum fjölbreytileikanum“

Yfirlýsing frá bæjarstjórn Akureyrar: „Fögnum fjölbreytileikanum“

Bæjarstjórn Akureyrar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að í öllu starfi sveitarfélagins sé undantekningarlaust haft að leiðarljósi að tryggja jafnan rétt allra og fagna fjölbreytileikanum.

Tilkynningin kemur í kjölfarið á greina­skrifum Helgu Dagg­ar Sverr­is­dótt­ur, grunn­skóla­kenn­ara í Morg­un­blaðinu. Í skrif­um sín­um velti Helga Dögg fyr­ir sér hvort fræðsla á veg­um Sam­tak­anna ’78 í grunn­skól­um gerðist brot­leg við 99. gr barn­vernd­ar­laga.

Helga Dögg starfar sem grunnskólakennari á Akureyri en Kennarasamband Íslands hefur fordæmt viðhorf hennar. Hér að neðan má sjá tilkynningu Akureyrarbæjar í heild.

„Að gefnu tilefni vill bæjarstjórn Akureyrar koma því skýrt á framfæri að í öllu því starfi sem sveitarfélagið hefur með höndum, er undantekningarlaust haft að leiðarljósi að tryggja jafnan rétt allra og fagna fjölbreytileikanum. Það eru grunvallarmannréttindi að allir njóti sama réttar óháð kyni, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu.

Lýðræðislegt og gott samfélag á borð við það sem við búum við hér á Akureyri byggir á því að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti mannréttinda, á það jafnt við um börn sem fullorðna. Mannréttindi leggja grunn að velferð einstaklinga, fjölskyldna, atvinnulífs og samfélagsins alls, líkt og segir í mannréttindastefnu Akureyrarbæjar sem starfsfólki sveitarfélagsins ber að halda í heiðri í öllum sínum störfum.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó