Ársþing SSNE fer fram á Siglufirði í dag og á morgun, í Bláa húsinu. Þing SSNE fara með æðsta vald landshlutasamtakanna og er skipað fulltrúum aðildarsveitarfélaganna. Þingum SSNE er ætlað að tryggja lýðræðislega aðkomu allra aðildarsveitarfélaga að málefnum SSNE, vera vettvangur ákvarðanatöku um mikilsháttar málefni þeim og stjórn til leiðbeiningar í veigamiklum málum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SSNE sem má lesa í heild hér að neðan.
Auk hefðbundinna þingstarfa mun innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, ávarpa þingið, auk Njáls Trausta Friðbertssonar þingmanns og Heiðu Bjargar Hilmisdóttur formanns stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hér má lesa árskýrslu 2022 og hér á eftir má sjá dagskrá þingsins:
Föstudagur 14. apríl
11:00 Mæting og skráning
11.30 Léttur hádegisverður
Dagskrá þingsins:
12:30 Þingsetning – Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður SSNE.
Kosning fundarstjóra, ritara og nefnda.
Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
Skýrsla framkvæmdastjóra.
Ársreikningur 2022 og skýrsla endurskoðanda.
Fjárhagsáætlun 2023 og 2024
13:10 Tillögur og ályktanir frá stjórn og þingfulltrúum
Kosning endurskoðanda.
Tillaga um breytingar á samþykktum.
Aðrar tillögur stjórnar
Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur málefni sem eru löglega upp borin.
Samstarfssamningur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra
14:40 Kaffihlé
15:00 Ávörp gesta
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
Njáll Trausti Friðbertsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
16:00 Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Leifur Þorkelsson, framkvæmdastjóri
17:00 Þinghlé
18:00 Fordrykkur í boði Fjallabyggðar á Segli 67
Kynning á starfseminni og fordrykkur
19.00 Kvöldverður á Rauðku
Laugardagur 15. apríl
09:00 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi
Smári J. Lúðvíksson, verkefnastjóri
09:30 Markaðsstofa Norðurlands
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
10:00 Kynning á Hátindi 60 + Fjallabyggð
Hjörtur Hjartarson, deildarstjóri félagsmáladeildar Fjallabyggðar
10:30 Lærum af hvort öðru – samtal á borðum
11:30 Önnur mál
12:00 Þingi slitið
UMMÆLI