Skógræktarfélag Eyfirðinga fékk í gær forláta bandsög að gjöf frá Guðmundi Þorsteinssyni, söng og skipasmíðameistara.
Bandsögin sú arna á sér merka sögu, var keypt ný til skipasmíðastöðvar Kea á eftirstríðsárum, þjónaði síðar Slippstöðinni á Akureyri um árabil áður en hún barst í eigu Guðmundar.
„Hann hefur haldið hefur gripnum vel við, enda er hún eins og ný úr kassanum og kemur til með að nýtast okkur afar vel til viðarvinnslu í Kjarnaskógi. Við þökkum höfðinglega gjöf,“ segir í tilkynningu Skógræktarfélagsins.
UMMÆLI