Framsókn

Markakóngurinn úr röðum KA þriðja árið í röðMynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Markakóngurinn úr röðum KA þriðja árið í röð

KA-maðurinn Einar Rafn Eiðsson varð markahæsti leikmaður Olísdeildar karla í handbolta þetta tímabilið. Þetta er þriðja árið í röð sem að markahæsti leikmaður deildarinnar kemur úr röðum KA. Einar skoraði 162 mörk í 22 leikjum eða 7,36 mörk að meðaltali í leik.

Á síðasta tímabili varð Óðinn Þór Ríkharðsson markahæsti leikmaður deildarinnar og þar áður var það Árni Bragi Eyjólfsson.

Nánari umfjöllun um markaskorun í Olís deild karla í vetur má finna á Handbolti.is.

Sambíó

UMMÆLI