Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar og Reginn atvinnuhúsnæði ehf. óska eftir tilboðum í endurbætur á kirkjutröppum og umhverfi þeirra á vef bæjarins í dag.
Um er að ræða endurnýjun á kirkjutröppunum, lagfæringar á þaki undir neðri hluta trappna, uppgröft og fyllingar ásamt frárennslis–, snjóbræðslu- og raflögnum. Smíði og uppsetning grindverks og jarðvegsfrágangur með þökulögn og fleira. Framkvæmdatími er frá 27.apríl til 15. Október 2023.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með deginum í dag, miðvikudeginum 5. apríl 2023.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en klukkan 11.00 miðvikudaginn 26. apríl 2023 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
UMMÆLI