Í síðustu viku var skrifað undir samning milli Akureyrarbæjar og Skíðafélags Akureyrar um Andrésar Andar leikana 2023. Markmiðið með samningnum er að styðja við Skíðafélagið þegar kemur að umgjörð og framkvæmd Andrésar Andar leikanna í Hlíðarfjalli. Þetta kemur fram á vef Akureyrar.
Andrésar Andar leikarnir eru fyrir börn á aldrinum 4-15 ára. Um er að ræða eitt stærsta skíðamót landsins með um 1.000 keppendum ár hvert. Þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2.500-3.000 manns sæki leikana. Sérstök Andrésarnefnd Skíðafélags Akureyrar sér um framkvæmd mótsins.
Andrésar Andar leikarnir fara að jafnaði fram frá miðvikudegi til laugardags í apríl, í sömu viku og sumardagurinn fyrsti.
UMMÆLI